5 einfaldir leikir með blað og penna
Share
Það þarf alls ekki alltaf mikið dót eða undirbúning til að búa til skemmtilegan leik með börnunum. Stundum duga bara blað og penni.
Hér eru 5 einfaldar hugmyndir sem hægt er að gera heima og aðlaga að aldri barnsins.
1. Finndu bókstafinn
Skrifið bókstafi á miða og dreifið þeim um herbergið.
Kallið svo upp bókstaf og barnið leitar að rétta miðanum.
Það má líka biðja barnið að finna fyrsta stafinn í nafninu sínu, nafni systkina eða öðrum orðum sem það þekkir.
2. Hoppaðu á rétta tölu
Skrifið tölur á miða og límið á gólfið.
Kallið upp tölu og barnið hoppar á réttan miða.
Fyrir eldri börn má líka kalla upp einföld dæmi, til dæmis „2 + 2“, og barnið hoppar á rétta svarið.
3. Finndu parið
Búið til tvo eins miða af hverju, til dæmis með sama bókstaf, tölu eða mynd.
Svo er bara að finna pörin.
Ef þið viljið gera þetta aðeins erfiðara má snúa miðunum niður og gera úr þessu lítið minnisspil.
4. Settu í rétta röð
Skrifið tölur 1–10 eða nokkra bókstafi á miða og ruglið þeim saman.
Barnið fær svo að raða þeim í rétta röð.
Það má líka gera þetta með stöfunum í nafninu þeirra, orðum eða það sem hentar aldri.
5. Litaleit
Veljið blöð í mismunandi litum eða teiknið mismunandi liti á blöðin og farið í leit um heimilið.
„Geturðu fundið eitthvað gult?“
„Hvað finnurðu sem er blátt?“
Einfalt, en mjög skemmtilegt fyrir yngri börn.
6. Formaleit
Teiknið mismunandi form á miða og farið í leit um heimilið.
„Geturðu fundið eitthvað hringlanna ?“
„Hvað finnurðu sem er eins og þríhyrningur?“
Góð áminning að leikur og nám þarf alls ekki að vera flókin.