Fljúgandi draugur!

Fljúgandi draugur!

Einföld tilraun sem er bæði skemmtileg og töfrandi að horfa á. Með venjulegum tepoka er hægt að búa til lítinn draug sem lyftist upp í loftið þegar hann hefur brunnið niður.

Fullkomið verkefni fyrir hrekkjavöku, eða bara þegar ykkur langar að prófa eitthvað aðeins öðruvísi með börnunum.

Þú þarft

  • Tepoka úr pappír
  • Skæri
  • Penna/blýant 
  • Eldspýtur eða kveikjara
  • Eldfast undirlag eða bara disk 

Svona gerum við

  1. Byrjið á því að klippa endann af tepokanum og tæma allt teið úr honum.

  2. Opnið pokann varlega þannig að úr verði langt, holt pappírsrör.

  3. Næst má teikna lítið draugaandlit á pokann.

  4. Setjið tepokann uppréttan á slétt og eldfast undirlag. Mikilvægt er að hann standi vel sjálfur.

  5. Fullorðinn kveikir síðan í efsta hluta pokans.

  6. Pokinn brennur smám saman niður og rétt áður en hann er alveg horfinn lyftist hann upp í loftið eins og lítill fljúgandi draugur!

Hér má sjá myndband af tilrauninni! 

Back to blog