Heimagerður leir!
Share
Hvaða barn elskar ekki að leira, mínir strákar geta allavega dundað við það heillengi. Og ekki verra að maður sjálfur gleymir sér oft í leir leik. Þótt leirinn út í búð sé góður þá jafnast ekkert á við að gera sinn eigin leir. Sömuleiðis er það skemmtileg stund með börnunum að gera leirinn saman. Ég hef notað þessa uppskrift sjálf bæði heima fyrir og á leikskóla og finnst hann æði! Hann endist lengi, hægt að hafa hann í hvaða lit sem er og fyrst og fremst auðveldur í býgerð.
Uppskrift
- 2 bollar hveiti
- 3/4 bollar salt
- 4 teskeiðar cream of tartar
- 2 bollar volgt vatn
- 2 teskeiðar af olíu (vegetable oil eða coconut oil)
- Matarlitur ef maður vill
- Pokar til að geyma leirinn.
Skref fyrir skref
- Blanda saman hveitinu, saltinu og cream of tartar í pott.
- Bæta olíu og vatni saman við. Ef þú ætlar að gera leirinn bara 1 lit þá setur þú litinn ofani núna, ef þú ætlar að gera fleirri þá sleppiru litnum í bili.
- Eldar þetta á miðlungs hita, hræra vel þangað til að degið er orðið eins og bolti.
- Tekur af hitanum og setur á bökunar pappír og leyfir því að kólna í smá stund
- Hnoðið degið þangað til það er mjúkt
- Ef þú ætlar að gera nokkra liti þá skiptiru kúlunni í jafn marga parta og litina sem þú ætlar að nota og setur í poka.
- Setur um 5 dropa af lit í hvern poka með degi og hnoðar degið meðan það er í pokanum svo þú fáir ekki lit á hendurnar.
Þá ertu kominn með leir sem endist lengi ef hann er geymdur vel í lokuðum poka.